Einn mánuður

| No Comments
Afsaka verður skorts á upplýsingaflæðis en það verður hreinlega að kenna of mikils áreitis af völdum skóla, skemmtunar og góðs veðurs (24°C) og þá nennir maður hreinlega ekki að sitja heima að skrifa blogg til þess að láta ykkur öfundast á í élja- og fjaðrafokinu heima...

Semmering

| 4 Comments
... heitir bær sem ég, fjórir frakkar, ítali og letti fórum með lest til í gærmorgun.  Þar er skíðasvæði en við gengum bara um staðinn.

Myndir í hlekknum...

Skautar

| 2 Comments
Síðasti dagur skautasvellsins fyrir framan ráðhúsið var á sunnudag.  Ég fór reynar ekki á skauta þá, heldur fyrir um tveimur vikum, en þetta eru myndir frá því síðast.
_DSC2488.jpg_DSC2443.jpg_DSC2399.jpg_DSC2390.jpg_DSC2383.jpg_DSC2349.jpg







Veðrið

| No Comments
Það er einkennilega íslenskt veður í dag...

Besti Skóladagur allra tíma?

| 1 Comment
I went to VW Bratislava and all i got was this lousy toy car!Til þess að byrja góða daga verður maður stundum að vakna snemma.  Í þessu tilviki kl. 6 í gærmorgun til að vera kominn í skólann kl. 7 að ná rútunni.  Ferðinni var heitið til Bratislava í verksmiðju Volkswagen.  Eftir að hafa fengið alveg hreint ágætis mat (samloka með reyktum lax og brauð með hráskinku og mozzorella, sem dæmi) var stutt kynning um verksmiðjuna.  Þar eru framleiddir VW Touareg, yfirbyggingin á Porsche Cayenne (sem eru síðan fluttir til Leipzig til þess að fá vél, gírkassa og dekk), Audi Q7 og Skoda Oktavia.  Vegna þess að ég lenti í síðasta hópnum í skoðunarferðinni urðum við að bíða í móttökubyggingunni í smá stund.

Electronic Superstar

| No Comments

Íbúðarfélaginn minn, Kristaps, benti mér á þetta frábæra myndband. Gaurinn átti víst að hafa reynt að senda það inn í eurovision sem framlag ríkisins, Molvaniu.

Símanúmer

| No Comments
+43 676 3112495
þá er það komið á hreint

Down under

| 2 Comments
Eftir sæmilega hepnnaða skautaferð í gærkvöldi for ég að hitta Agnar á Down Under, sem er ástralskur bar. Þegar ég kom úr neðanjarðarlestinni var ég ekki viss hvar staðurinn væri, þannig ég brá á það ráð að spyrja leigubílstjóra.

Vííííí (n)

| No Comments
Þá er maður loksins kominn út.  Þetta er bara hreint ágætt.  Bý hérna með lettneskum stráki sem heitir Kristaf.  Það er búið að taka tíma sinn að koma netinu í húsinu í gott horf en það hafðist.  Eftir að hafa lent og verið sóttur á lestarstöðina, þurfti nú að byrja á því að kaupa rúm handa mér.  Þannig við fórum í eitthvað hús þar sem heil tvö voru keypt fyrir €35 (grjóni, þú veist hvað það þýðir).  Þar sem karlinn á pínulítinn bíl þurftum við að binda annað þeirra við þakið.

Á elleftu stundu

| 1 Comment
WalterÞá virðist sem að húsnæðismálin hafi bara leysts.  Allt þökk sé facebook.  Þetta mun vera einn austurrískasti maður sem ég hef séð (sjá mynd).  Við verðum bara að vona að hann eigi ekki kjallara... maður fer nú varlega með þann brandara úti.  Það gleymist seint hvað gerðist síðast þegar austurrískur maður reiddist fyrir 70 árum!